|
|
28.06.2008 12:24:04 / somnus
Jæja já, thá er madur kominn til Køben.
Thann 18. júní sídastlidinn logdu 3 kexrugladir íslendingar leid sína til Clisson í Frakklandi á tónlistarhátídina Hellfest.
Sídan thá hofum vid drepid nidur fæti í 4 londum, 5 stórborgum, ælt thrisvar, sofnad í Berlín og vaknad í Malmø, gengid orugglega um 100 km. (bara í rauda hverfinu...), aldrei verid rændir, hofum ekki týnt neinu mikilvægu og enginn er alvarlega veikur thó ad ég sé med snert af hálsbólgu.
Á thessari skemmtilegu, og oft á koflum stórfurdulegu ferd okkar hef ég áttad mig á nokkrum hlutum:
Ég hata Frakkland Ég elska Holland Skinka thídir 'dagblad' eda eitthvad á ollum tungumálum nema íslensku thví allt kjotálegg í útlondum bragdast, lyktar og lítur út eins og dagblad.
Fyrstu dagana í Frakklandi brann ég líka til kaldra kola undir sólinni og skil eftir mig húdflygsur útum allt, eins og versti snákur.
Fáid ekki fleira í bili, kem med betri lýsingu á ferdinni á morgun thegar ég man eitthvad meira (;
aRy
»
11.12.2007 21:02:16 / somnus
Jæja, ég gleymi alltaf að ég eigi bloggsíðu. Ég losnaði við umbúðirnar og naglana úr hendinni um daginn, þig getið séð afraksturinn með því að klikka hérna til hliðar. Liðurinn alveg í klessu en ég ætti að vera kominn í ágætt lag eftir áramót. En nóg um þá vitleysu. Hmm, hef í raun ekkert annað að segja. Þangað til næst...
»
01.08.2007 19:05:18 / somnus
Ég ætla að gerast fyrsti íslenski hryðjuverkamaðurinn og
sprengja höfuðstöðvar www.myalbum.is í tætlur ef síðan fer ekki að
komast aftur í gang.
En yfir í annað...
Ég legg til að allir skelli sér á Ásbyrgi um helgina, það verður
skásta veðrið þarna fyrir norðan og svo er Ásbyrgi bara einn
fallegasti staður á okkar ylhýra Íslandi. Það verður fínt verður á
laugardaginn og þá væri tilvalið að henda tjaldstól á jörðina og
sötra smá öl, kíkja svo kannski á Akureyri ef einhverjir vilja það.
Maður verður nú að gera eitthvað af sér áður en vinnan/skólinn
byjar aftur!
Já, held að það sé málið.
Ah já, meðan ég man. Ég náði að koma nokkrum myndum inná
myndasafnið hérna, bara smá sýnishorn af þeim 500 myndum sem munu
koma inná myalbum.is!
»
26.07.2007 04:48:45 / somnus
Ah, hérna sit ég í myrkrinu og hlusta á mestu snilld allra
tíma.
Þá er maður kominn heim(reyndar fyrir löngu en það er
aukaatriði).
Ég er ekki búinn að gera neitt síðan ég kom. Nákvæmlega ekki
neitt, enda ennþá fárveikur síðan á Roskilde. Ætli maður verði ekki
að gera eitthvað næstu helgi til að halda blóðinu á hreyfingu.
Myndasíðan er dauð og ég hef ekki hugmynd hvenær hún lifnar við á
ný, en þegar það gerist... 525 myndir af bjór... (Og eitthvað fólk
í kring um bjórinn)
(Ah já, ef þið viljið vita hvaða snilld ég er að hlusta á þá eru
það tónleikar sem voru teknir upp 1972 í Campania, Ítalíu. Þeir sem
finna hvaða tónleikar þetta eru fá bjór og riiiisakoss frá mér næst
þegar ég hitti viðkomandi.) (og þá má biðja mig um
vísbendingar)
»
13.07.2007 00:35:40 / somnus
Jæja, hérna sit ég. Reykjavík.
Ég er í raun svolítið leiður. Danmörk er mikið afslappaðari en
Ísland finnst mér, þegar ég fór með Kristjáni í strætó í Roskilde
tók ég svona 20 myndir af einhverju ókunnugu fólki sem bauð manni
bjór en þegar ég tók strætóinn frá BSÍ og heim fékk maður skammir
ef maður rétt rakst utaní annan mann. En! Það má ekki gleyma því að
frá BSÍ voru flestir að koma heim eftir langann vinnudag... Ekki á
leiðinni á Muse eða The Who með bjór í hönd.
Ég er ánægður með þessa ferð, en þó ekki meira en það. Ég kom
alltof lítið undirbúinn, og gerði ekki nóg. Það verður nóg punktað
niður fyrir næstu hátíð, guð minn góður... Það verður sko rooosaleg
ferð.
Heyrið þið það!?
Byrjið að safna, því allavega ég ætla að skemmta mér eins og
Íslendingi er einum lagið á ROSKILDE 08! Ég þakka kærlega fyrir
mig.
SÉ YKKUR AÐ ÁRI LIÐNU!
»
12.07.2007 00:25:28 / somnus
Jaeja, verd ad vera fljotur med thetta. A bara 7 min eftir af
"Surfing Time" a thessu tolvudrasli ¤/)(&"#%&/
Er a Kastrup nuna, nennti ekki ad vera lengur i risatjaldinu
minu svo eg henti tvhi bara(Svipurinn a tjaldstaedaverdinum thegar
eg tok allt helvitis tjaldid og henti thi i gaminn var oborganlegur
; D)
Lagdi bara af stad uppa kastrup klukkan 5 og er buinn ad
vera herna sidan. Keypti mer haug af gitar blodum og er bara buinn
ad vera lesa sidan.
12 timar til stefnu...
Er kominn med alveg otrulega heimthra, er veikur med hofudverk,
54312 blodrur a fotunum og eg lykta verr en keila. En... mer lidur
samt sem adur otrulega vel, nybuinn ad lifa af Roskilde og alla tha
drullu sem tar var, buinn ad komast leidar minnar thratt fyrir
litla sem enga donskukunnattu og allt an thess ad slasa mig. Djoful
er madur godur ;P
Kem a morgun kaera Island... Sjaumst tha.
KAERLIG HISLEN FRA KASTRUP FOR HELVETE!!!
»
06.07.2007 22:18:45 / somnus
Jæja jæja, tha er madur staddur a Roskilde(og get ekki notad
islenska stafi...)
Eg og Jon Einar stondum herna a einhverju netkaffi i midju
drulluhafinu og skodum frettir dagsins. Tad do einhver a Orange
Stage i dag en tad var af natturulegum astaedum, einhverir sviar
sprengdu primus og voru sentir a spitala(stoned sviar i sandolum
;D)
Okkar hopur er bara anaegdur, allir rennandi blautir en tad
tekur enginn eftir thvi.
Eg og Kristjan fludum svaedid i gaer og gistum i køben eina
nott. Tad tok okkur 7 tima ad komast af svaedinu og inna
tjaldsvaedi i køben vegna thess ad 10.000 adrir Roskilde gestir
hofdu akvedid ad gera tad sama og vid, hvert einasta gistiheimili,
hotel og farfuglaheimili yfirbokud >:l En vid fundum indaelis
leigubilstjora sem fann laust tjaldsvaedi handa okkur og vid hentum
upp 300 fermetra einbylishusinu minu(keypti alltof stort tjald :/)
og svafum naestu 6 timana.
Svo voknudum vid og hypjudum okkur bara aftur
heim(Roskilde).
En ja, thetta er fint. Orlitid meiri drulla en eg atti von a en
hey, eg er thurr, eg a bjor og a eftir ad fara a svona 20 - 30
tonleika a naestu dogum 
(Tad vantar fullt af smaatridum herna a milli hja mer en eg
nenni ekki ad skrifa meira i bili)
KÆRLIG HILSEN FRA ARI OG JON AT ROSKILDE FESTIVAL!!!
»
27.06.2007 18:43:43 / somnus
Jæja, næstu vikurnar verður hérna
aðeins bloggað um Roskilde-ferð mína.
Ég er kominn til Reykjavík og ekki búinn að kaupa
neitt af því sem ég ætlaði að kaupa, ég nennti því ekki í dag
þannig að ég geri það bara í Jysk Sengetøjlager á Fredriksgade...
Eða eitthvað.
Núna er klukkan 18:30 og þá er ég búinn að naga
fingurneglurnar upp að öxl og fer sennilega að byrja á
tánöglunum.
Ég og Lalli ætlum að skella okkur á
heimsfrumsýningu á Die Hard 4 í lúxussal á eftir... Á ekki von á að
einu sinni John McClane geti dreift huga mínum frá því að eftir
rúmlega 15-16 tíma verð ég röltandi á strikinu með bjór í annarri
og bjórkassa í hinni!!!
Danmörk... Neglið fyrir gluggana, læsið
dætur ykkar í kjallaranum, felið bjórinn... Því Ari er á
leiðinni.
»
13.02.2007 20:23:20 / somnus
Jæja, þá situr maður uppí rúmi og flýtur í slefi og hori.
Í morgun vaknaði ég við þær yndislegu aðstæður að koddinn minn
var undir fótunum mínum og sængin á gólfinu.
Síminn minn var undir hálsinum mínum þannig að þegar hann
byrjaði að skjálfa og pípa þá hrökk ég upp með andköfum sem varð
til þess að sparkaði í gítarinn sem stóð upp við vegginn fyrir
aftan rúmið.
Þegar ég náði meðvitund og var búinn að bölva símanum í sand og
ösku(mjög hljóðlega) þá reyndi ég að anda en komst þá að því að ég
er orðinn kvefaðasti maður í sögu íslands. Eftir aðeins meira af
vel völdum fúkyrðum beint að þeim frumum sem geta ekki varið sig
gegn elsta og einfaldasta sjúkdómi sem er til á okkar ástkæru jörð,
þá rölti ég fram á baðherbergi og snýtti mér í svona 2 eða 3
klósettrúllur samtals.
Eftir að hafa sprengt þakið af húsinu með látunum í mér hoppaði
ég uppí rúm aftur og hnerraði næstu klukktímana... Þetta var
þriðjudagurinn 13. febrúar í grófum dráttum hjá mér.
Helgin var fín, svolítið furðuleg á köflum (;
Næsta helgi verður örugglega helvíti góð, hef það á
tilfinningunni
»
08.02.2007 00:10:14 / somnus
Jæja, þá er maður búinn að ná sér eftir áramótin.
Nei nei, segi svona.
Það hefur lítið verið bloggað hér því það eina sem ég hef gert
síðan um áramót er að sofa, fyrir utan eitt og eitt fyllerí hverja
helgi. Ah já, og vinna eitthvað smá. Ætli maður drullist ekki til
að blogga eitthvað af og til.
Ég gekk frá kaupum á flugmiðum til Hróaskeldu í gær... Núna verð ég
á róandi þangað til ég flýg út, get bókstaflega ekki beðið!"$% Mér
er að takast að ná slatta af fólki með mér en það líst ekki öllum
alltof vel á 14 daga af drykkju, svita og djammi. Hljómar himneskt
í mínum eyrum
Svo er ég búinn að rústa bílnum, ekki að það sé einhver
missir...
Jæja, fáið ekki að vita meira í bili.
Drekka alltof mikið næstu helgi? Já.
Gera sig að fífli fyrir framan alltof mikið af fólki? Já.
Gefa alltof mikið af áfenginu mínu? Sennilega...
Bjóða Önnu aftur á Hróaskeldu? Já.
»
14.12.2006 18:26:30 / somnus
Jæja, núna skuluð þið setja ykkur í stellingar því næsta helgi
verður rosaleg.
Það eru allir "congobúarnir" loksins búnir að drulla sér heim og
því verður væntanlega fagnað eins og okkur einum er lagið. Svo eru
svíarnir að fara heim og maður verður að skála nokkrum sinnum við
þá áður en þeir fara.
Hef ekkert að segja... Fylgist með myndum á næstunni!
»
24.09.2006 22:18:31 / somnus
Úff, þetta var án efa ruglaðasta helgi sem ég hef upplifað
lengi.
Þetta byrjaði allt hjá honum Natani þar sem ég, Daddi, Helgi og
Natan sátum við FIFA 2006 og þömbuðum bjór eins og við ættum lífið
að leysa. Svo um það bil 30 bjórum síðar var röltað niðrá bar þar
sem allur Djúpivogur og einhverjir frá Egilsstöðum voru komnir í
afmælið sem var haldið þar. Svo man ég ekki neitt...
En öllu gríni sleppt var þetta mjög gaman. Frír bjór, skemmtilegur
hópur fólks og góð tónlist. Ég þakka bara fyrir mig og vona að við
getum endurtekið þetta fljótlega!
Og já, milljón myndir á myndasíðunni.
»
21.09.2006 23:55:22 / somnus
Þá er ég búinn að henda nýjustu djamm myndunum inn á myndasíðuna,
endilega kíkið þangað.
Þetta eru semsagt myndir frá föstudags- og laugardagskvöldinu, frá
öllum hornum Djúpavogs (Jæja ok, frá barnum allavega).
Ætla að benda tónelsku fólki á að kíkja á lag eftir góðvin minn
Patrick á www.patrickabbott.com
Farið þarna í Music og klikkið á Finding The Way. Mjög gott
lag.
»
21.09.2006 19:32:59 / somnus
Jæja, nú fer helvíti að frjósa því kallinn er kominn með bloggsíðu.
Ég hendi inn nokkrum orðum þegar ég set nýjar myndir á myndasíðuna.
»
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|